Poetry Service Inc.
by Óskar Árni Óskarsson
Poetry Service Inc.
for Geirlaugur Magnússon
I was walking down Túngata on a fine autumn afternoon when a little white van
came rushing up Ægisgata and stopped for just for a moment at the zebra
crossing at the corner where I stood waiting. It then took a sharp left turn and
drove on down Túngata. On the side of the van it said Poetry service, inc. — tel.
5680250. This seemed quite remarkable. I was elated, having never heard of
such a service before. I imagined the little white van dashing up to Grafarvogur
to deliver a poem by Ísak Harðarson and then making its way to Framnesvegur
on the west side of town with a poem by Vilborg Dagbjartsdóttir, a sort of
express service for poetry. Next morning, I decided to phone the company to see
if they could send a certain poem I had in mind to a good friend of mine who
lived at that time in Hamraborg in Kópavogur. A female voice answered drily:
Pottery service. How can I help you.
Edited by Meg Matich.
Translated by Áslaug Agnarsdóttir.
Ljóðaþjónustan ehf
tileinkað Geirlaugi Magnússyni
Ég var á leiðinni niður Túngötuna eitt fallegt síðdegi í haust
þegar lítill hvítur sendiferðabíll kom á allmikilli ferð upp
Ægisgötuna og nam andartak staðar við gangbrautina þar
sem ég stóð á gatnamótunum. Hann tók svo skarpa beygju
og hélt áfram niður Túngötuna. Bíllinn var merktur:
Ljóðaþjónustan ehf — sími 5680250. Mér þótti þetta nokkuð
merkilegt, var eiginlega uppnuminn, hafði aldrei heyrt af
slíkri þjónustu aður. Ég sá fyrir mér þennan litla, hvíta
sendiferðabíl skutlast upp í Grafarvog með ljóð eftir Ísak
Harðarson og strax að því loknu bruna með ljóð eftir
Vilborgu Dagbartsdóttur vestur á Framnesveg; eins
konar hraðsendingarþjónusta fyrir ljóð. Morguninn
eftir ákvað ég að hringja í fyrirtækið og athuga hvort
þeir gætu ekki sent ákveðið ljóð, sem ég hafði í huga,
til góðs kunningja míns sem bjó um þær mundir í
Hamraborginni í Kópavogi. Það var heldur þurrleg
kvenmannsrödd sem svaraði: Lóðaþjónustan, góðan dag.
2015